Til baka í Aðalvalmynd

Til baka í myndasafn


Myndir úr veiðiferðunum 9.9-14.9, 16.9-20.9 & 22.9-27.9

Jón Óskar mættur til að skrifa undir skráninguna sína.

Foringinn að setja upp plast til að auðvelda þrif.

Lúðvig að bíða.

Sonur Roberts að kveðja pabba sinn á bryggjunni.

Og kona og börn Lúðvigs einnig að kveðja.

Og Robert og Luðvig kveðja sitt fólk.

Sonur Roberts á bryggjunni

Flottasti matsveinninn í flotanum.

Daddi stýrimaður tekinn til starfa.

Robert að maula á eitthverju.

Luðvig og Stebbi við fyrstu kvöldmáltíðina (kakósúpa).

Þessi er ótrúlega flottur.

Skipstjórinn að reyna koma hornunum sínum á stýrimanninn.

Skipstjórinn og yfirvélstjórinn að spá í hvað eigi að gera við sjúklinginn (Hlynur Þór).

Ákveðið var að sauma hann (Held vélstjórinn hafi viljað nota sög eða slípirokk)

Björn búinn að stilla sér upp fyrir myndatöku.

Foringinn (Bjarki) búinn að stilla sér upp fyrir myndatöku.

Robert (Mafíuforinginn) búinn að stilla sér upp fyrir myndatöku.

Daddi (Kjartan) stýrimaður í fullri vinnu við að stýra skipinu og halda uppi fjarskiptum.

Bjössi að undirrita uppsagnarbréfið sitt.

Hlynur Þór átti afmæli 12.sept. og fékk tertu.

Þetta var eitt af síðustu skiptunum sem ég fékk að ræsa Bjössa.

Jón Óskar á rúllunni.

Robert með gúmmífiska (Keila) í lestinni.

Afmælistertan hans Hlyns.

Fann fiskamerki á þorsk sem var merktur við Krísuvíkurbjarg í apríl.

Og Daddi fékk sinn skammt af tertunni (hefði örugglega viljað meira).

Og foringinn (Bjarki) fær sér kríu eftir morgunmatinn og er það orðin hefð sem ekki má rjúfa.

Jón Óskar að lesa og Lúddi með magasýningu.

Hlynur Þór á bekknum.

Hlynur (Gubbi) á rúllunni í síðasta túrnum sínum.

Stebbi (flauel, AA-bolti) á uppstokkaranum.

Þetta mun vera nýji vélavörðurinn sem tók við af Bjössa.

Gubbi (Hlynur) nýbúinn að gubba.

Pétur (PéCé) í lestinni.

Og Daddi orðinn þreyttur á bullinu í Robert.

Foringinn (Bjarki ex bóndi) að skamma beitugengið.

Foringinn (Bjarki ex bóndi) að lempa beitunni niður.

Jón Óskar í sunnudagsbolnum sínum.

Eitthvað var af fartölvum í ferðalaginu okkar norður.

Og hvað er Jónas að borða (eins gott að konan hans sjái ekki þessa mynd).

Olli (Lúddabróðir), Lúddi, Foringinn (ex bóndi), Kjartan (Daddi) & PéCé (Pétur).

Jónas (skipstjóri), Bjarki (foringi) & Bjarni (yfirvélstjóri) í aðgerð.

Jónas skipstjóri.

Og hann þarf að sýna hluta aflans.

PéCé, Jón Óskar (Borgarfjarðartröllið) & Lognið (matsveinn) að skoða myndir í fartölvunni. Takið eftir fallega skipinu (Grundfirðingur) á Shell dagatalinu (Sept 04) á veggnum.

Markús (Krúsi) að hugsa um eitthverjar stelpur.

 


Til baka í Aðalvalmynd

Til baka í myndasafn